
AC Milan vill endurnýja samning Luka Modric eftir frábært tímabil hans það sem af er.
Ítalski miðillinn Calciomercato greinir frá þessu, en þrátt fyrir að hann verði 41 árs á árinu hefur Modric verði algjörlega frábær fyrir Milan frá komu sinni frá Real Madrid í sumar.
Modric gerði aðeins samning þar til í sumar en hefur Milan möguleika á að framlengja þann samning um ár til viðbótar. Félagið hyggst nýta sér það í ljósi þess hversu mikilvægur króatíski miðjumaðurinn hefur reynst þeim.