
Manchester United mistókst að vinna sinn fimmta leik í röð gegn West Ham í kvöld.
Markalaust var eftir fyrri hálfleikinn en snemma í þeim seinni kom Tomas Soucek West Ham yfir.
Það leit lengi vel út fyrir að það yrði sigurmark leiksins en Benjamin Sesko jafnaði fyrir United á sjöttu mínútu uppbótartíma.
Lokatölur 1-1. United er í fjórða sæti deildarinnar en West Ham er 5 stigum frá öruggu sæti.