fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Ætlar ekki að ræða mögulega klippingu við leikmennina

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 10. febrúar 2026 10:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Michael Carrick, bráðabirgðastjóri Manchester United, segist þekkja söguna af stuðningsmanninum sem hefur heitið því að klippa sig ekki fyrr en liðið vinnur fimm deildarleiki í röðl, en hann segir hana ekki verða hluta af ræðunni fyrir leik.

Stuðningsmaðurinn Frank Ilett hefur ekki farið í klippingu síðan 5. október 2024 eftir að hafa heitið því að láta hárið vaxa þar til United næði fimm sigrum í röð í úrvalsdeildinni. United vann sinn fjórða leik í röð um helgina gegn Tottenham og er því aðeins einum sigri frá því að heit Iletts rætist.

United er nú í fjórða sæti deildarinnar, en næsti leikur er gegn West Ham á útivelli í kvöld.

Sagan er þó ekki með United þar, því liðið hefur tapað síðustu þremur leikjum sínum á London Stadium. Síðasti sigur þar kom í september 2021, þegar Carrick var í þjálfarateyminu hjá Ole Gunnar Solskjær.

Carrick var spurður út í málið og svaraði léttur. „Ég get sagt að ég viti af þessu, já. Krakkarnir mínir hafa látið mig vita ef eitthvað er.“

Hann bætti við. „Þetta fer þó ekki inn í liðsræðuna á faglegum grunni. En ég skil þetta og það fær mig til að brosa. Það mun þó ekki hafa áhrif á leikinn að lokum.“

Stuðningsmenn fylgjast nú spenntir með hvort röðin haldi áfram og hvort hárið fari loksins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn