
Jordan Henderson trúði vart sínum eigin eyrum eftir sigur Brentford gegn Newcastle yfir því að horft hafi verið framhjá Vitaly Janelt í vali á manni leiksins hjá Sky Sports.
Brentford vann 3-2 sigur, þann fyrsta á útivelli gegn Newcastle síðan 1934, en Janelt skoraði eitt marka liðsins og átti frábæran leik á miðjunni.
Eftir leikinn var Henderson í viðtali hjá Sky ásamt Janelt, en þegar ljóst varð að verðlaunin færu til Dango Ouattara brást hann undrandi við.
„Hvað, fékk hann þau ekki? Ekki séns! Hver ákveður þetta? Ég ætlaði einmitt að segja að það væri kominn tími á að hann fengi verðlaun,“ sagði Henderson og hristi hausinn.
Myndband af þessu er hér að neðan.
😂 “NO CHANCE!” | Jordan Henderson Can’t Believe Janelt Was SNUBBED of POTM pic.twitter.com/aPqxBaoF9m
— PLUTOWAVEFOOTBALL (@chakkapak71119) February 7, 2026