fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Barcelona segir sig úr Ofurdeildinni og skilur Real Madrid eitt eftir

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 8. febrúar 2026 11:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Barcelona hefur tilkynnt að félagið hafi formlega dregið sig út úr fyrirhuguðu Ofurdeildarverkefni Evrópu (Super League). Með þeirri ákvörðun er Real Madrid eina félagið sem enn stendur að verkefninu.

Upphaflega stóðu 12 stórfélög að baki Ofurdeildinni þegar hún var kynnt árið 2021. Verkefnið vakti gríðarlega gagnrýni frá stuðningsmönnum, knattspyrnuyfirvöldum og öðrum félögum. Sex ensku félögin sem tóku þátt, Arsenal, Chelsea, Liverpool, Manchester City, Manchester United og Tottenham, drógu sig fljótt út eftir hörð viðbrögð.

Í kjölfarið fylgdu Atletico Madrid, AC Milan og Inter einnig fordæminu og sögðu skilið við verkefnið. Þá stóðu eftir Barcelona, Real Madrid og Juventus. Juventus hætti svo þátttöku árið 2024 og sneri aftur í samstarf evrópskra félaga.

Í yfirlýsingu sem birt var á laugardag staðfesti Barcelona ákvörðun sína. Þar kemur fram að félagið hafi tilkynnt Ofurdeildarfélaginu og öðrum aðilum formlega um úrsögn sína. Þar með virðist verkefnið nánast úr sögunni, að minnsta kosti í sinni upprunalegu mynd.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn