

Fyrirliði Arsenal, Martin Odegaard, viðurkennir að leikmenn liðsins finni stundum fyrir taugaspennu frá stuðningsmönnum á Emirates-leikvanginum. Hann segir það þó eðlilegan hluta af fótbolta og að hópurinn hafi reynslu og styrk til að takast á við slíkan þrýsting.
Ummælin koma í kjölfar gagnrýni frá Roy Keane, sem hélt því fram að taugaóstyrkur í stúkunni hefði smitast yfir á leikmenn í 3-2 tapi gegn Manchester United á dögunum.
Síðan þá hefur Arsenal svarað fyrir sig á vellinum með sigrum í Meistaradeild og bikarkeppni, auk góðs útisigurs í deildinni. Ödegaard segir andrúmsloftið á Emirates yfirleitt mikinn styrk fyrir liðið.
„Stundum finnur maður fyrir taugum því það eru svo margir á vellinum. En stemningin er yfirleitt frábær og við fáum mikla orku frá stuðningsmönnum,“ sagði hann.
„Auðvitað verða þeir stressaðir ef við erum að verja forskot, en það er hluti af leiknum.“
Hann telur að titilbarátta síðustu ára hafi harðnað liðið. „Við höfum vaxið sem hópur, orðið reyndari og þroskaðri. Við trúum á það sem við erum að gera og höldum áfram að berjast á hverjum degi.“
Ödegaard segir lykilinn vera daglega vinnu á æfingasvæðinu og að liðið sé á góðum stað þegar styttist í lok tímabilsins.