
Leeds vann Nottingham Forest í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.
Heimamenn leiddu 2-0 í hálfleik með mörkum Jayden Bogle og Noah Okafor. Dominic Calvert-Lewin fór svo langleiðina með að gera út um leikinn með marki snemma í seinni hálfleik.
Lorenzo Lucca klóraði í bakkann með marki fyrir Forest seint í leiknum en nær komust gestirnir ekki. Lokatölur 3-1.
Leeds er í 16. sæti, 9 stigum fyrir ofan fallsvæðið, en Forest er sæti neðar með 3 stigum minna.