
Kees Smit, ungur miðjumaður AZ Alkmaar, er eftirsóttur og hann er orðaður við nokkur af stærstu félögum Evrópu í dag.
Smit er aðeins tvítugur en er í stóru hlutverki í Hollandi. Hefur hann áður verið á blaði stórliða.
Arsenal, Manchester United, Liverpool og Real Madrid er nú sögð fylgjast með gangi mála hjá kappanum, sem er samnningsbundinn til 2028.
Það verður þó ekki ódýrt að landa Smit, en talið er að AZ Alkmaar vilji rúmar 70 milljónir punda fyrir hann.