fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Segir Liverpool hálfgerða bjána að borga svona upphæð – Setur pressu á leikmanninn

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 4. febrúar 2026 20:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Liverpool tryggði sér varnarmanninn Jeremy Jacquet á lokadegi félagaskiptagluggans eftir kapphlaup við Chelsea. Kaupverðið getur numið allt að 60 milljónum punda, með 55 milljónir tryggðar og viðbætur upp á fimm milljónir. Jacquet gengur formlega til liðs við Liverpool 1. júlí eftir að hafa lokið læknisskoðun og samið til fimm ára.

Jacquet, sem er aðeins 20 ára, var á láni í frönsku B-deildinni fyrir ári en hefur síðan spilað 36 leiki í Ligue 1 fyrir Rennes og vakið athygli stórliða.

Dugarry, heimsmeistari frá 1998, sparaði þó ekki stóru orðin. „Þetta er ekki árás á leikmanninn. Hann er góður og ég óska honum alls hins besta. En þegar þú finnur kaupanda sem borgar svona, þá gerði Rennes frábærlega,“ sagði hann við RMC Sport.

Hann bætti við. „Þetta er fótbolti sem hefur misst vitið. Það er engin réttlæting fyrir svona upphæðum.“

Dugarry telur verðið setja gríðarlega pressu á ungan leikmann. „Jafnvel fyrir strákinn sjálfan verður þetta erfitt. Hann mun vera dæmdur öðruvísi vegna upphæðarinnar, þó hann eigi það ekki skilið.“

Að mati Frakkans sýna þessi kaup hvernig ensk félög haldi áfram að ýta verðbólgu á leikmannamarkaðnum upp á nýtt stig.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn