fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Staðfesta sorglegt andlát fjölskylduföðurs

433
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi varnarmaður Inter, Nicolas Giani, er látinn aðeins 39 ára að aldri eftir langvarandi veikindi, en þetta kemur fram í ítölskum miðlum.

Giani neyddist til að leggja skóna á hilluna árið 2022 eftir að hafa greinst með ólæknandi sjúkdóm, sem nú hefur dregið hann til dauða.

Giani ólst upp í unglingastarfi Inter og var hluti af akademíu félagsins á árunum 1998 til 2005, þó hann hafi aldrei leikið með aðalliði félagsins. Inter sendi frá sér yfirlýsingu þar sem félagið vottaði fjölskyldu hans innilegustu samúðarkveðjur.

Giani lék á ferli sínum meðal annars með Pro Patria, Vicenza, Perugia, SPAL og Spezia. Hann var fyrirliði SPAL þegar félagið vann Serie B árið 2017, eitt af stærstu afrekum ferils hans.

Fyrrverandi félög Giani hafa öll sent frá sér samúðaryfirlýsingar. Hann lék einnig með U-18 og U-19 ára landsliðum Ítalíu, en spilaði aldrei A-landsleik.

Giani skilur eftir sig eiginkonu og eina dóttur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn