fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Óttast ekki að verða rekinn á næstu dögum

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Robin van Persie hefur hafnað því að starf hans hjá Feyenoord sé í hættu þrátt fyrir slakt gengi liðsins að undanförnu. Feyenoord tapaði 3-0 gegn PSV Eindhoven um helgina og er nú 17 stigum á eftir toppliðinu í hollensku deildinni.

Van Persie tók við liðinu í febrúar í fyrra í sínu fyrsta stóra þjálfarastarfi eftir að hafa komið frá Heerenveen. Feyenoord endaði í þriðja sæti á síðasta tímabili og vonir stóðu til að liðið myndi veita PSV meiri samkeppni í ár.

Liðið hefur þó aðeins unnið einn af síðustu sex deildarleikjum sínum og féll einnig úr Evrópudeildinni. Eftir leikinn gegn PSV var Van Persie spurður út í stöðu sína. „Þið verðið að spyrja stjórnendur félagsins,“ sagði hann og bætti við.

„Ég er vonsvikinn og ber ábyrgð. Það sem ég sá í dag var mjög slakt.“

Fyrirliðinn Timon Wellenreuther studdi þjálfarann og sagði leikmennina ekki hafa framkvæmt leikplanið rétt. Van Persie telur sig geta snúið genginu við.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn