

Knattspyrnudeild Víkings tilkynnir að Ármann Ingi Finnbogason hefur hefur skrifað undir samning til ársins 2029 við félagið.
Ármann er fæddur árið 2004 og er uppalinn hjá ÍA. Ármann lék á láni hjá Grindavík í Lengjudeildinni síðasta sumar en lék sumarið 2023 í Lengjudeildinni með ÍA og 2024 í Bestu deildinni.
„Ármann er mjög áræðinn og leikinn kantmaður með góðan vinstri fót og hefur mikið af þeim eiginleikum sem kantmaður Víkings þarf að hafa. Það verður mjög spennandi að fylgjast með honum í sumar,“ segir Kári Árnason yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi.
Talið er að Ármann verði lánaður til nýliða Þórs í Bestu deildinni.