fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

U-beygja hjá Roy Keane – Telur nú að félagið eigi að ráða Carrick til framtíðar

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 29. janúar 2026 13:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Roy Keane segist nú vonast til þess að Michael Carrick fái fast starf sem knattspyrnustjóri Manchester United, þrátt fyrir að hafa áður verið harðlega gagnrýninn á þann möguleika.

Ummælin koma í kjölfar sigra United gegn bæði Manchester City og Arsenal undir stjórn Carrick.

Keane viðurkenndi þó jafnframt að hann teldi ekki endilega að það væri rétta ákvörðunin að ráða Carrick til frambúðar og hélt því fram að United gæti fengið betri stjóra næsta sumar. „Ég vona að hann fái starfið, en ég held samt að félagið geti fengið betri mann,“ sagði Keane í Stick to Football-hlaðvarpi The Overlap.

Þessi afstaða markar ákveðna stefnubreytingu, en Keane vakti mikla athygli um helgina þegar hann sagði að hann myndi ekki ráða Carrick jafnvel þótt hann ynni síðustu 15 leiki tímabilsins. Ummælin vöktu hörð viðbrögð og gagnrýndi blaðamaðurinn Nathan Salt hjá Daily Mail jafnvel Keane fyrir vandræðalega nálgun sína.

Gary Neville minnti Keane á fyrri orð sín í þættinum, en Keane svaraði að staða tímabundins stjóra væri allt önnur en að vera langtímalausn sem ætti að keppa um titla næstu ár. Hann hrósaði þó Carrick fyrir góða vinnu og sagði árangurinn gæti tryggt honum annað starf í úrvalsdeildinni, jafnvel þótt hann fengi ekki United starfið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn