

Crystal Palace hefur náð samkomulagi í meginatriðum við Wolverhampton Wanderers um kaup á sóknarmanninum Jørgen Strand Larsen fyrir um 50 milljónir punda. Þetta kemur fram hjá The Athletic.
Áhugi Palace á Norðmanninum hefur aukist verulega síðustu 24 klukkustundir og er nú gert ráð fyrir að formlegt tilboð verði lagt fram á næstu dögum.
Samkvæmt Sky Sports News halda viðræður áfram óháð því hvernig framtíð Jean-Philippe Mateta verður á Selhurst Park.
Palace braut nýlega félagsmet sitt á félagaskiptamarkaði þegar félagið keypti Brennan Johnson frá Tottenham Hotspur fyrir 35 milljónir punda fyrr í glugganum. Nú stefnir Lundúnaliðið á að fara enn lengra og slá það met með kaupum á Strand Larsen.
Strand Larsen hefur vakið athygli fyrir framistöðu sína með Wolves og er talinn geta bætt markaskorun og kraft í sóknarleik Crystal Palace á komandi tímabili.