fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Ná sáttum og skólinn axlar ábyrgð á sjálfsvígi stúlkunnar

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 28. janúar 2026 18:30

Meyer og foreldrar hennar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stanford-háskóli hefur náð sátt við fjölskyldu knattspyrnukonunnar Katie Meyer, sem svipti sig lífi árið 2022, eftir að foreldrar hennar sökuðu skólann um að hafa átt þátt í andláti hennar.

Meyer var fyrirliði og markvörður knattspyrnuliðs Stanford Cardinals.

Meyer lést í mars 2022, aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hún komst að því að hún gæti átt yfir höfði sér brottvísun úr skólanum vegna atviks þar sem hún hellti heitu kaffi á leikmann í fótboltaliði skólans.

Foreldrar hennar höfðuðu mál gegn Stanford og sökuðu skólann um kerfisbundin mistök og að hafa farið gáleysislega og ábyrgðarlaust með agamál hennar.

Lagadeilan lauk á mánudag þegar samkomulag náðist milli aðila. Fjárhæð sáttarinnar hefur ekki verið gerð opinber. Sem hluti af samkomulaginu mun Stanford hætta að nota treyju númer 19 til minningar um Meyer.

Þá hefur skólinn einnig samþykkt að innleiða meginreglur svonefndra „laga Katie Meyer“, sem foreldrar hennar hafa barist fyrir í kjölfar andláts hennar, með það að markmiði að bæta verklag skóla í agamálum nemenda.

Í þessari frétt er fjallað um þunglyndi og sjálfsvíg. Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Í gær

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta
433Sport
Fyrir 2 dögum

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn