

Tottenham Hotspur vinnur nú að því að ná samningi við varnarmann Liverpool, Andy Robertson, vilja þeir kaupa hann nú í janúar.
Þetta kemur fram hjá The Athletic. Skotinn, sem er 31 árs gamall, var sagður vera skotmark Spurs í sumar, en félagið hefur ákveðið að flýta áformunum og reyna að fá hann strax í janúar.
Samkvæmt Athletic ganga viðræður á milli allra aðila vel og í góðu andrúmslofti. Samningur Robertson við Liverpool rennur út næsta sumar, sem gerir stöðu hans áhugaverða fyrir félög sem vilja styrkja vinstri bakvarðarstöðuna án þess að greiða háa kaupverðupphæð.
Tottenham hefur þó þegar styrkt þessa stöðu í vetur með komu brasilíska unglingsins Souza frá Santos, sem félagið greiddi um 13 milljónir punda fyrir. Þrátt fyrir það virðist félagið vilja bæta við reynslu og leiðtogahæfileikum í varnarleikinn.
Robertson hefur verið lykilmaður hjá Liverpool í mörg ár og á að baki yfir 60 landsleiki fyrir Skotland. Hann gæti reynst Spurs mikilvæg viðbót bæði innan og utan vallar.