

Bandaríska knattspyrnustjarnan Trinity Rodman hefur skrifað undir risasamning við Washington Spirit í NWSL-deildinni og verður með því hæst launaða knattspyrnukona heims.
Rodman samdi til þriggja ára og verður hjá félaginu í höfuðborg Bandaríkjanna til ársins 2028.
Samningurinn tryggir Rodman að meðaltali yfir eina milljón dollara í árslaun og er sá stærsti í sögu deildarinnar. Samkvæmt umboðsmanni hennar, Mike Senkowski hjá Upper 90 Sports Group, er þetta jafnframt stærsti samningur sem kvenkyns knattspyrnuleikmaður hefur skrifað undir á heimsvísu.
Rodman, sem er 23 ára, gengur þar með í klúbb NWSL ásamt samherja sínum í bandaríska landsliðinu, Sophíu Wilson, sem varð fyrst leikmanna til að ná sjö stafa launum þegar hún virkjaði samningsákvæði fyrir 2026.
Þrátt fyrir áhuga frá Evrópu ákvað Rodman að vera áfram hjá Spirit. „Ég hef gert DMV-svæðið að heimili mínu og Spirit að fjölskyldu minni. Ég vissi að þetta væri rétti staðurinn fyrir næsta kafla á ferlinum,“ sagði Rodman í tilkynningu frá félaginu.
Hún er dóttir Dennis Rodman sem er goðsögn í NBA eftir farsælan feril hjá Chicago Bulls.