fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Hafa sett fram kröfur sínar eftir að hafa hafnað fyrsta tilboði Juventus

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 20. janúar 2026 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Juventus halda áfram viðræðum við Crystal Palace um kaup á framherjanum Jean-Philippe Mateta eftir að fyrsta tilboð ítalska stórliðsins var hafnað.

Samkvæmt enskum blöðum bauð Juventus upphaflega lánsgjald að upphæð 1,7 milljónir punda, með ákvæði um að greiða 24,5 milljónir punda til viðbótar ef félagið næði sæti í Evrópukeppni.

Crystal Palace var þó ekki sátt við það tilboð og metur Frakkann mun hærra.

Enska félagið vill fá um 35 milljónir punda fyrir Mateta, sem er 28 ára og hefur verið lykilmaður í liði Palace undanfarnar leiktíðir. Framherjinn hefur vakið athygli fyrir líkamlegan styrk, vinnusemi og markaskorun í úrvalsdeildinni.

Juventus leitar að langtímalausn í fremstu víglínu og hefur Mateta verið skilgreindur sem áhugaverður kostur. Viðræður milli félaganna halda áfram og ekki er útilokað að nýtt tilboð verði lagt fram á næstu dögum ef samkomulag næst um verð og greiðslufyrirkomulag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn