fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Fær dóm eftir dónaleg skilaboð og að elta konuna uppi þegar hún var við störf – „Ég vil eignast börnin þín“

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 20. janúar 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður hefur hlotið tveggja ára nálgunarbann og 18 mánaða samfélagsþjónustu fyrir að hafa elt og áreitt leikmann Liverpool, Marie Höbinger.

Mangal Dalal, 42 ára, sendi Höbinger ítrekuð óviðeigandi og kynferðisleg skilaboð á Instagram á þriggja vikna tímabili frá 27. janúar 2024. Síðar beið hann hennar við hliðarlínuna eftir leik. Dalal sendi austurrísku landsliðskonunni, sem er 24 ára, myndir af nærfötum sínum, skilaboð á borð við „ég vil eignast börnin þín“ og upplýsingar um heimilisfang hennar og póstnúmer. Hann sagðist elska hana og „óska þess að þau hefðu sofið saman“.

Hann notaði tvo Instagram-reikninga til að hafa samband.

Í febrúar 2024 ferðaðist Dalal frá London til Manchester til að mæta á útileik Liverpool gegn Manchester City. Höbinger hafði þá þegar látið félagið vita og fékk öryggisfulltrúa sér til fylgdar vegna öryggisótta. Starfsmaður á leikvanginum greindi Dalal í stúkunni og lögregla hafði afskipti, Dalal viðurkenndi hegðunina en sagði sig hafa verið andlega veikan á þeim tíma.

Í yfirlýsingu til dóms sagði Höbinger að hún hefði átt erfitt með svefn, verið kvíðin heima ein og fundið fyrir óöryggi á leikdegi. Hún sagðist sorgmædd yfir því kvennaknattspyrna væri gerði kynferðisleg og að engin kona ætti að þurfa að þola slíkt.

Verjandi Dalal sagði hann þjást af geðhvarfasýki og hafa verið í manískum lotum. Hann hafi beðist afsökunar og sé í meðferð. Dómarinn sagði hegðunina mjög alvarlega þrátt fyrir að hún hafi átt sér stað á samfélagsmiðlum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Í gær

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta
433Sport
Fyrir 2 dögum

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn