fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Vakti athygli að ung kærasta hans og barnið mætti til að fagna með

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 19. janúar 2026 18:00

Sadio Mane og frú.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sadio Mané, 33 ára sóknarmaður Senegals, fagnaði sigri landsliðsins í Afríkukeppni landsliða ásamt eiginkonu sinni, Aishu Tamba, sem er 20 ára, og nýfæddu fyrsta barni þeirra. Þetta var sjaldgæf opinber framkoma fjölskyldunnar eftir fæðingu barnsins og kom í kjölfar dramatíkar í úrslitaleiknum.

Mané lék lykilhlutverk í sigri Senegal, sem tryggði sér 1-0 sigur á Marokkó eftir framlengingu í úrslitaleiknum. Þetta var jafnframt svanasöngur Mané á Afríkukeppninni, en hann hafði fyrir mótið greint frá því að þetta yrði hans síðasta þátttaka á þessu stóra móta.

Úrslitaleikurinn var afar umdeildur. Senegal hafði fengið mark dæmt af sér undir lok venjulegs leiktíma og skömmu síðar fengu Marokkómenn vítaspyrnu. Þjálfari Senegal, Pape Thiaw, brást ókvæða við og kallaði leikmenn sína af velli í mótmælaskyni. Þetta leiddi til þess að leikurinn stöðvaðist í tæpar 16 mínútur áður en vítaspyrnan var loks tekin.

Á meðan urðu átök milli stuðningsmanna og óeirðalögreglu í Rabat, sem jók enn á spennuna í kringum leikinn. Senegal náði þó að halda haus í framlengingunni og tryggði sér sigurinn.

Eftir leikinn sást Mané sameinast eiginkonu sinni og barni á vellinum, þar sem hann fagnaði einum stærsta sigri ferils síns og lauk jafnframt glæsilegum kafla í landsliðsferli sínum á Afríkukeppninni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn