

Jökull Andrésson, markvörður FH, var gestur Íþróttavikunnar á 433.is og sat í setti með Helga Fannari Sigurðssyni og Herði Snævari Jónssyni.
Það gengur aðeins betur hjá Fiorentina, sem er óvænt í fallbaráttu í Serie A, og umræðan um framtíð Íslendingsins Alberts Guðmundssonar fer minnkandi, en hann var sterklega orðaður við Roma á dögunum.
„Já, það er bara flott að hann sé kominn í stórt hlutverk þarna aftur núna. Ekkert inni og út úr liðinu eins og var hjá fyrrum þjálfara.
Þeir þurfa bara að halda sínu striki og halda sér uppi, sem ég held að þeir geri alltaf,“ sagði Hörður í þættinum og telur hann að Albert, sem er einn besti leikmaður íslenska landsliðsins, verði áfram í Flórens út leiktíðina.
Umræðan í heild er í spilaranum.