
Hópur breskra þingmanna úr nokkrum flokkum hefur nú opinberlega krafist þess að FIFA útiloki Bandaríkin frá því að halda og taka þátt í heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í sumar vegna pólitískra atburða og utanríkisstefnu Trump-stjórnarinnar.
Mótið hefst eftir um fimm mánuði en 78 leikir af 104 verða leiknir í Bandaríkunum, hinir í Mexíkó og Kanada.
23 þingmenn úr fjórum flokkum hafa skrifað undir tillögu í breska þinginu þar sem þeir hvetja FIFA og önnur alþjóðleg íþróttasamtök til að skoða hvort Bandaríkin ættu áfram að fá að halda mótið og keppa í því.
Kemur þetta í kjölfar handtöku Bandaríkjamanna á Nicolas Maduro, forseta Venesúela, og ummæla Donald Trump og hans fólks um að taka yfir Grænland.
Það verður að teljast afar ólíklegt að FIFA, með Gianni Infantino, góðan vin Trump, í forsetastól sambandsins, íhugi tillögur þingmannanna.