
Ummæli Gary Neville í beinni útsendingu Sky Sports í leik Arsenal og Liverpool í síðustu viku leiddu til alls 576 kvartana til breska fjölmiðlaeftirlitsins samkvæmt Telegraph.
Kvartanirnar tengdust harðri gagnrýni Neville á hegðun Gabriel Martinelli, sem ýtti Conor Bradley þegar hann lá meiddur á vellinum undir lok markalausa jafnteflisins á Emirates.
Neville sagðist ekki skilja hvernig leikmenn Liverpool sátu á sér í stað þess að ráðast á Martinelli og taka á sig rautt spjald.
Bradley hefur síðan gengist undir aðgerð á hné og leikur ekki meira á tímabilinu. Martinelli baðst afsökunar eftir leik og Arne Slot kom honum til varnar, sagði málið frekar tengjast leiktöfum í deildinni almennt, en Martinelli taldi að Bradley væri að tefja.
Engin útsending í breskum fjölmiðlum leiddi til eins margra kvartanna í síðustu viku, raunar fékk engin þeirra yfir 50 kvartanir, nema þessi tiltekna útsending Sky Sports.