
Manchester United eru sífellt bjartsýnni á að tryggja sér miðjumanninn Carlos Baleba frá Brighton næsta sumar, samkvæmt heimildamönnum The Sun sem standa nærri félaginu.
United hyggst endurbyggja miðjuna eftir tímabilið, samhliða því að nýr stjóri verður ráðinn til frambúðar.
United reyndi mikið við hinn 22 ára gamla Baleba í sumar, en Brighton sló Rauðu djöflana frá sér. Hann hefur ekki átt gott tímabil hingað til og spurning hvort staðan hafi breyst.
Brighton mat Baleba á 80-100 milljónir punda síðasta sumar, en United lagði aldrei fram formlegt tilboð.
United er einnig að skoða fleiri miðjumenn, þar á meðal Elliot Anderson hjá Nottingham Forest, Adam Wharton hja Crystal Palace og Alex Scott hjá Bournemouth.
Óvissa ríkir jafnframt um framtíð Bruno Fernandes, Casemiro og Manuel Ugarte, sem undirstrikar þörf United fyrir nýtt blóð á miðjuna næsta sumar.