
Anis Hadj-Moussa hefur vakið mikla athygli með góðri frammistöðu með Alsír í Afríkukeppninni og er nú kominn á óskalista nokkurra stórliða.
Samkvæmt Foot Mercato í Frakklandi hefur Chelsea haft samband vegna mögulegra félagaskipta þessa 23 ára gamla leikmanns strax í þessum glugga.
Hadj-Moussa hefur átt frábæran fyrri hluta tímabils með Feyenoord. Hann hefur skorað sjö mörk og lagt upp þrjú í 23 leikjum og verið einn besti leikmaðurinn í hollensku úrvalsdeildinni.
Chelsea er eitt þeirra félaga sem sýna áhuga og hafa þegar átt fund með umboðsmanni leikmannsins. Feyenoord er meðvitað um áhuga Lundúnaliðsins, sem er þekkt fyrir að fjárfesta í ungum og efnilegum leikmönnum til framtíðar.