
Það er ólíklegt að Marcus Rashford snúi aftur til Manchester United í sumar, en hann er sem stendur á láni hjá Barcelona.
Rashford hefur tekist að endurvekja feril sinn í Katalóníu eftir að hafa verið settur út í kuldann á Old Trafford.
Börsungar vilja hafa hann áfram hjá sér og vill leikmaðurinn sömuleiðis halda kyrru fyrir hjá þeim.
Barcelona hefur möguleika á að kaupa hann á 26 milljónir punda í sumar en Talksport segir að félagið sé ekki til í að virkja það ákvæði, það vilji ekki greiða svo háa upphæð.
Miðillinn segir því að möguleikarnir séu að United samþykki lægra tilboð eða að Rashford fari aftur á láni til Barcelona með kaupskyldu næsta sumar.
Miðað við þetta er allavega nokkuð ljós að allir aðilar munu setjast að samningaborðinu næstunni.