fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Segja Brössunum að hósta upp rúmum sjö milljörðum

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 14. janúar 2026 10:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lucas Paqueta vill komast frá West Ham og aftur heim til Brasilíu. Það verður þó ekki ódýrt að fá hann.

Hinn 28 ára gamli Paqueta var einnig orðaður burt frá Hömrunum í fyrra, þá til Aston Villa, en hélt hann kyrru fyrir.

Nú er áhuginn hins vegar frá Brasilíu og er Flamengo einna helst nefnt til sögunnar. Er það einmitt uppeldisfélag Paqueta.

Paqueta er lykilmaður hjá West Ham og brasilískir miðlar segja Lundúnaliðið ekki taka það í mál að selja hann ódýrt.

Hefur það sett 42,5 milljóna punda verðmiða á hann að þeirra sögn og má leikmaðurinn þá helst ekki fara fyrr en í sumar.

Framtíð Paqueta gæti skýrst á næstu dögum, en hann er samningsbundinn West Ham í eitt og hálft ár til viðbótar.

Auk West Ham og Flamengo hefur Paqueta spilað með AC Milan og Lyon á ferlinum, en hann hefur verið á Englandi síðan 2022. Varð hann Sambandsdeildarmeistari með West Ham vorið 2023.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn