fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
433Sport

Kante orðaður við endurkomu til Evrópu

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 14. janúar 2026 07:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

N’Golo Kante gæti verið á leið aftur í evrópska boltann, en tyrkneska stórliðið Fenerbahce hefur sýnt honum mikinn áhuga nú þegar aðeins sex mánuðir eru eftir af samningi hans við Al-Ittihad í Sádi-Arabíu.

Samkvæmt franska miðlinum L’Équipe hefur Kante ekki enn samþykkt nýjan samning við Al-Ittihad, sem opnar dyrnar fyrir félagaskiptum. Fenerbahce vill ekki bíða fram á sumar heldur reynir að landa heimsmeistaranum strax í janúarglugganum og er tilbúið að greiða félagi hans hóflegt kaupverð.

Kante, sem er 34 ára, er einn sigursælasti miðjumaður sinnar kynslóðar og hefur unnið nánast alla titla sem í boði eru, þar á meðal HM með Frökkum, Meistaradeildina og enska meistaratitilinn með Chelsea. Hefur hann haldið uppteknum hætti í Sádí og verið meðal bestu manna þar.

Al-Ittihad vill halda Kante og hefur boðið honum nýjan samning, en samkvæmt fréttum hefur hann ekki viljað skrifa undir. Talið er að von um að vera í franska landsliðshópnum á HM næsta sumir gæti spilað inn í.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn