
Pep Guardiola lét dómara og VAR heyra það eftir 2-0 sigur Manchester City á Newcastle í fyrri leik liðanna í undanúrslitum enska deildabikarsins á St James’ Park.
Nýi maðurinn Antoine Semenyo og Rayan Cherki gerðu mörk City, en fyrrnefndi leikmaðurinn virtist vera að skora annað mark sem var dæmt af vegna rangstöðu Erling Braut Haaland, en erfitt er að sjá að það hafi verið réttur dómur.
Meira
Myndband: Netverjar brjálaðir yfir atviki fyrir norðan í kvöld – „Leikurinn er ónýtur“
„Fjórir dómarar og VAR gátu ekki tekið ákvörðunina og þurftu að senda dómarann í skjáinn. Ég skil þetta ekki,“ sagði Guardiola eftir leik.
Hann rifjaði einnig upp tvö atvik úr 2-1 tapi gegn Newcastle í deildinni í nóvember þar sem VAR greip ekki inn í. „Þeir slepptu því á ótrúlegan hátt að dæma tvö víti en núna er gripið inn í. Ég skil þetta ekki,“ sagði hann.
Guardiola kvaðst eiga von á símtali frá Howard Webb, yfirmanni dómarasamtakanna.