
„Mér finnst hún bara til skammar fyrir okkur,“ sagði Pétur Marteinsson, fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður í knattspyrnu og frambjóðandi til oddvitasætis Samfylkingarinnar í borginni, um aðstöðuna á Laugardalsvelli.
Pétur var í áhugaverðu viðtali í hlaðvarpinu Chess After Dark á dögunum. Þar ræddi hann framboð sitt en var einnig farið í hin ýmsu mál tengd knattspyrnunni, hvar Pétur átti frábæran feril á árum áður. Til að mynda var rætt um Laugardalsvöll. Pétur vann að enduruppbyggingu vallarins í þó nokkurn tíma.
Síðan hefur Laugardalsvöllur verið bættur að því leyti að það er komið hybrid-gras á völlinn. Aðstaðan hvað varðar allt annað er hins vegar sú sama og bætingin ekkert í líkingu við það sem Pétur og knattspyrnuhreyfingin hefðu viljað sjá.
„Ég hélt ég gæti gert meira gagn hinum megin við borðið en á sviði stjórnmálanna. Ég gekk eins langt og ég gat með þetta verkefni. Við vorum búin að fá samning við ríki og Reykjavíkurborg. Aðilar þvert á flokka trúðu og vildu að við hefðum þjóðarleikvang (í lagi),“ sagði Pétur.
„Það var búið að teikna þetta, greina þetta og gera mismunandi sviðsmyndir. Sú stærsta var dýrust, með opnanlegu þaki. Grunnurinn í því var að búa til verkefni sem gæti staðið undir sér og styrkt íslenska knattspyrnu. Í dag er þetta þannig að það leka peningarnir, þetta er dýrt fyrir Reykjavíkurborg og KSÍ. Þetta er ekki business. Mín nálgun var sú að það væri hægt að búa til verkefni sem skilaði arði fyrir knattspyrnuhreyfinguna og eiganda vallarins. Auðvitað tæki það tíma en þetta er infrastrúktúrs-verkefni.“
Útlitið var gott þar til tafir og loks heimsfaraldur settu strik í reikninginn.
„Það var sameining hjá Reykjavíkurborg, ríki og KSÍ. Það var stofnað félag 2018. Ég skila af mér 1. apríl 2018 og það á að fara af stað með þetta. Það dregst á langinn, síðan kemur Covid og það hefur bara ekkert gerst í þessu verkefni.“
Pétur vill beita sér fyrir þessu máli, komist hann í ráðhúsið í vor. Er hann á því að einn rekstraraðili eigi að standa að bæði uppbyggingu fyrirhugaðrar þjóðarhallar og þjóðarleikvangs.
„Mér finnst að það þurfi alltaf að vera einhver stór verkefni í ráðhúsinu þannig að það sé stemning og eitthvað bjart framundan til að hlakka til. Laugardalurinn í heild er eitt þannig verkefni. Mér finnst að það þurfi að deiliskipuleggja þetta verkefni aftur og finna leið til að ríki, Reykjavíkurborg, KSÍ og íþróttahreyfingin, eftir atvikum, geti eignast þjóðarleikvanga, bæði þjóðarhöll og knattspyrnuvöll.“
Það má sjá Pétur ræða þessi mál hér ofar.