
KM er Íslandsmeistari í Futsal karla árið 2026. Þetta varð ljóst með sigri liðsins á Ísbirninum í gær.
Af vef KSÍ
KM eru Íslandsmeistarar í Futsal karla 2026!
Liðið vann Ísbjörninn í 5-4 í framlengdum leik í úrslitaleik keppninnar. Ísbjörninn hafði unnið keppnina í fjögur ár í röð.
KM hafði unnið sigur á Fjölni í undanúrslitum á meðan Ísbjörninn hóf leið sína í úrslitin í umspili um sæti í undanúrslitum. Þar vann liðið Aftureldingu/Hvíta/Álafoss áður en það vann svo Þrótt/SR í undanúrslitum.
Húsfyllir var er liðin mættust í Digranesi á sunnudag.
Til hamingju KM!