
Oliver Glasner, stjóri Crystal Palace, vakti athygli aðeins nokkrum klukkustundum eftir ein óvæntustu úrslit í sögu enska bikarsins.
Palace, sem vann keppnina á síðustu leiktíð eftir sigur á Manchester City í úrslitum, féll óvænt úr leik með 2-1 tapi gegn Macclesfield í þriðju umferð. Macclesfield er í utandeild og er 117 sætum neðar en Palace í enska deildakerfinu.
Þrátt fyrir niðurlæginguna sást Glasner síðar um kvöldið í góðum gír á fínum bar í Soho í miðborg London.
Samkvæmt fréttum enskra miðla átti Glasner að fljúga heim til Austurríkis eftir leik, en flugi hans var aflýst og fór hann því út með þjálfarateymi sínu í staðinn.
Framtíð Glasner hjá Palace er óljós, en samningur hans rennur út í sumar og hefur hann verið orðaður við stjórastarfið hjá Manchester United.