
Manchester United mun skoða öll tilboð í Joshua Zirkzee og Manuel Ugarte í janúar. ESPN segir frá.
Báðir gengu í raðir United fyrir síðustu leiktíð en hafa ekki staðið undir væntingum. Zirkzee hefur verið orðaður við endurkomu til Ítalíu og Ugarte var síðast orðaður við Ajax.
United ku hins vegar ekki vera til í að losa Kobbie Mainoo, sem var í frystikistunni undir stjórn Ruben Amorim eftir að hafa verið lykilmaður hjá Ten Hag.
Amorim var rekinn á dögunum og sér félagið fram á að miðjumaðurinn ungi fái nú stærra hlutverk á ný. Stjóraleit stendur yfir sem stendur, bæði að bráðabirgðastjóra og manni til að taka við til frambúðar í sumar.