Bradley Barcola kantmaður PSG er efstur á óskalista Vincent Kompany stjóra Bayern í sumar.
Kompany var að klára sitt fyrsta tímabil með Bayern og gerði ágætlega.
Bayern ætlar að reyna að styrkja öfluga liðið sitt í sumar og er Barcola efstur á lista.
Barcola er 22 ára gamall franskur landsliðsmaður en Sky Sports í Þýskalandi fjallar um málið.
Þar segir að Bayern skoði einnig Nico Williams kantmann Athletic Bilbao en hann er líkt og Barcola 22 ára gamall.