Það vekur athygli að sonur Raheem Sterling er búinn að skrifa undir samning við enska stórliðið Arsenal.
Thiago, sonur Raheem, er átta ára gamall en hann mun hefja sinn knattspyrnuferil með Arsenal þó faðir sinn sé ekki leikmaður liðsins.
Raheem spilaði vissulega með Arsenal á þessu tímabili en hann kom á lánssamningi frá Chelsea og sýndi alls ekki sínar bestu hliðar.
Arsenal er ekki talið ætla að halda Raheem fyrir næsta tímabil og þá hefur Chelsea engan áhuga á að nota hann næsta vetur.
Sonurinn mun þó byrja að spila með U9 liði Arsenal en greint var frá þessu á samskiptamiðlum í gær.