
Hollenskir miðlar voru harðorðir eftir að PSV vann óvæntan 4–1 sigur á Liverpool á Anfield í Meistaradeildinni í gær.
Liverpool hefur nú tapað níu af síðustu 12 leikjum og er í frjálsu falli undir stjórn Arne Slot, aðeins nokkrum mánuðum eftir að liðið varð Englandsmeistari.
Omroep Brabant sagði að PSV hefði „búið til hakk“ úr Liverpool og hrósaði frábærum leik gestanna.
Dutch News talaði um að Liverpool hafi verið flengt og Eindhovens Dagblad lýsti sigri PSV sem gríðarlega mikilvægum á afar óöruggu liði Liverpool.
De Telegraaf sagði einfaldlega að PSV hefði verið of sterkt fyrir Liverpool og að stuðningsmenn liðsins hefðu yfirgnæft Anfield.
Liverpool er nú í 12. sæti í deildinni og í vandræðum í Meistaradeildinni. Slot á erfitt verkefni framundan og næstu leikir gegn West Ham, Sunderland og Leeds gætu ráðið miklu um framtíð Hollendingsins hjá félaginu.