fbpx
Laugardagur 28.febrúar 2026
433Sport

Slagsmál í miðbænum vekja óhug – Sjáðu myndbandið

433
Þriðjudaginn 25. nóvember 2025 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ringulreið skapaðist víða í miðbæ Marseille fyrir leik heimamanna gegn Newcastle í Meistaradeildinni í kvöld. Um 500 enskir stuðningsmenn lögðu leið sína til borgarinnar og lögregla var send á hááhættu svæði við krár og slíka staði.

Táragas var notað á hóp Newcastle-aðdáenda á einum bar, en á sama tíma voru myndbönd á samfélagsmiðlum sem sýndu stuðningsmenn beggja liða syngja saman níðsöngva um PSG. Samt sem áður brutust út slagsmál á götum borgarinnar.

Mikill viðbúnaður er við leikvanginn sömuleiðis , eins og gefur að skilja, en leikurinn hefst eftir hálftíma.

Atburðirnir í dag fengu enska miðla til að rifja upp blóðug slagsmál enskra og rússneskra stuðningsmanna í Marseille fyrir leik liðanna á EM 2016.

Hér að neðan má sjá brot af slagsmálunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
433Sport
Í gær

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn
433Sport
Í gær

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn
433Sport
Í gær

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð