fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
433Sport

Fylkir framlengir við Daníel Þór og aðra efnilega leikmenn

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 2. apríl 2025 17:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Daníel Þór Michelsen (fæddur árið 2007) og fleiri ungir leikmenn hafa framlengt samninga sína við Fylki.

Daníel er örfættur miðjumaður með mjög góðan vinstri fót, hann hefur þó undanfarið einnig verið að leysa stöðu bakvarðar og getur því nýst bæði varnar og sóknarlega.

Hann hefur verið í æfingahópi meistaraflokks Fylkis í vetur og komið við sögu í nokkrum leikjum. Daníel hefur verið á  úrtaksæfingum hjá yngri landsliðum Íslands í gegnum árin.

Aðrir sem framlengdu:
Nói Hrafn Ólafsson (fæddur 2007) er örfættur sóknarmaður. Nói er mjög leikinn með knöttinn og naskur fyrir framan mark andstæðinganna. Nói hefur komið við sögu í tveimur leikjum meistaraflokks í vetur.

Guðmundur Ernir Brynjarsson (fæddur árið 2008) er útsjónarsamur varnarmaður sem er lunkinn með knöttinn og fastur fyrir í návígum. Guðmundur hefur komið við sögu í einum leik meistaraflokks í vetur.

Ívar Hrafn Atlason (fæddur árið 2008) er sóknarmaður með mikla knatttækni og góðan leikskilning. Ívar er sonur Atla Sveins Þórarinssonar fyrrum þjálfara meistaraflokks og núverandi þjálfara 2. og 3.flokks karla. Ívar hefur komið við sögu í fjórum leikjum meistaraflokks í vetur.

Jóel Baldursson (fæddur 2007) er atorkusamur miðjumaðurmeð mikla hlaupagetu, markheppinn og með gott auga fyrir spili. Jóel hefur komið við sögu í fjórum leikjum meistaraflokks í vetur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Bruno Fernandes daðrar við Spán og Ítalíu – Heldur áfram að vekja athygli með ummælum sínum

Bruno Fernandes daðrar við Spán og Ítalíu – Heldur áfram að vekja athygli með ummælum sínum
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Fer líklega til Bandaríkjanna en ekki í faðm Messi og Beckham

Fer líklega til Bandaríkjanna en ekki í faðm Messi og Beckham
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Forsætisráðherra til í að fara með Abramovich fyrir dómstóla

Forsætisráðherra til í að fara með Abramovich fyrir dómstóla
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Opnar sig um áhuga Manchester United í sumar

Opnar sig um áhuga Manchester United í sumar
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum
Góð tíðindi af Orra
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Valtýr hellir sér yfir mann sem kom til Íslands á dögunum – „Það á bara að snúa honum við og senda hann úr landi“

Valtýr hellir sér yfir mann sem kom til Íslands á dögunum – „Það á bara að snúa honum við og senda hann úr landi“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Fer frítt frá Liverpool

Fer frítt frá Liverpool
433Sport
Í gær

Fullkrug fer líklega á láni til Ítalíu

Fullkrug fer líklega á láni til Ítalíu
433Sport
Í gær

Lýsir miklum vonbrigðum eftir að samningnum var óvænt rift

Lýsir miklum vonbrigðum eftir að samningnum var óvænt rift