fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Meistaradeildin: Manchester City komst áfram eftir sigur – Liverpool tapaði en vann deildina

Victor Pálsson
Miðvikudaginn 29. janúar 2025 22:02

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester City náði að halda sér í Meistaradeild Evrópu í kvöld en lokaumferðin fór fram og voru margir spennandi leikir sem fóru fram.

City þurfti að vinna Club Brugge frá Belgíu en útlitið var ekki of gott eftir fyrri hálfleikinn þar sem gestirnir voru yfir, 0-1.

City skoraði hins vegar þrjú mörk í seinni hálfleik og tryggði sigurinn og er komið í umspil um sæti í 16-liða úrslitum.

Önnur ensk félög voru í eldlínunni en varalið Liverpool tapaði í Hollandi 3-2 gegn PSV Eindhoven en var löngu komið í næstu umferð.

Arsenal vann lið Girona 2-1 á útivelli þar sem Raheem Sterling klikkaði á vítaspyrnu undir lok leiks.

Fjórða enska liðið, Aston Villa, fékk Celtic á heimavelli þar sem Morgan Rogers skoraði þrennu í 4-2 heimasigri.

Liverpool vinnur deildarkeppnina með 21 stig úr átta leikjum en þar á eftir fylgja fjögur lið með 19 stig, Barcelona, Arsenal og Inter.

Tvö lið enda deildarkeppnina án stiga en það eru Young Boys frá Sviss og Slovan Bratislava frá Slóvakíu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn