fbpx
Laugardagur 23.ágúst 2025
433Sport

Guardiola mun ekki stöðva leikmann sinn á leið út um dyrnar

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 13. janúar 2025 12:03

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kyle Walker gæti verið á förum frá Manchester City á næstunni og Pep Guardiola, stjóri liðsins, ekki standa í vegi hans.

Hinn 34 ára gamli Walker hefur verið hjá City síðan 2018 en er nú sterklega orðaður við Mílanó-liðin á Ítalíu til að mynda.

„Hann er ótrúlegur leikmaður með ótrúlega líkamlega burði. Þegar hann er með hausinn við efnið er hann óstöðvandi sem hægri bakvörður, heimsklassa leikmaður. Ef hann helst heill getur hann spilað í allt að fjögur ár til viðbótar sem atvinnumaður,“ segir Guardiola.

„En ef hann vill prófa eitthvað nýtt mun félagið skoða það. Hann tekur ákvörðun, ekki ég. Þetta er ekki mín ákvörðun að taka.“

Walker hefur mikið verið í umræðunni vegna mála hans utan vallar og hjónabands hans. Gæti það spilað inn í að kappinn vilji yfirgefa England.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

England: Tottenham náði í frábæran sigur á Etihad

England: Tottenham náði í frábæran sigur á Etihad
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Stjóri Brentford um Wissa: ,,Hann skuldar mér“

Stjóri Brentford um Wissa: ,,Hann skuldar mér“
433Sport
Í gær

Vestri bikarmeistari í fyrsta sinn

Vestri bikarmeistari í fyrsta sinn
433Sport
Í gær

Sjáðu ótrúlegt mark í bikarúrslitunum

Sjáðu ótrúlegt mark í bikarúrslitunum