fbpx
Föstudagur 26.júlí 2024
433Sport

Segir að Osimhen vilji koma til félagsins – ,,Vill feta í mín fótspor“

Victor Pálsson
Sunnudaginn 3. mars 2024 22:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru ansi góðar líkur á því að framherjinn Victor Osimhen sé að kveðja lið Napoli í sumarglugganum.

Osimhen er einn öflugasti framherji Evrópu en hann er á mála hjá Napoli sem hefur átt mjög erfitt tímabil í vetur.

John Obi Mikel, fyrrum leikmaður Chelsea og landi Osimhen, hefur rætt við sóknarmanninn og hvetur hann til að ganga í raðir þeirra bláklæddu.

Mikel telur að Osimhen hafi áhuga á að spila fyrir Chelsea og er sannfærður um að hann myndi hjálpa liðinu mikið þegar kemur að markaskorun.

,,Ég er nokkuð viss um að það sé áhugi bæði frá Chelsea og Osimhen,“ sagði Mikel.

,,Ég held að hann elski þetta félag, hann vill koma og vill feta í mín fótspor sem nígerískur leikmaður Chelsea. Victor Moses og Celestine Babayaro voru einnig þarna, við erum nokkrir.“

,,Ég er að reyna að ýta honum í rétta átt, ég vona að hann skrifi undir því hann myndi hjálpa félaginu svo mikið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Ótrúleg upprifjun af heimsfrægri stjörnu – Viðstöddum brugðið er hann skellti klámmynd í tækið

Ótrúleg upprifjun af heimsfrægri stjörnu – Viðstöddum brugðið er hann skellti klámmynd í tækið
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Leikmaður Chelsea gæti tekið áhugavert skref í sumar

Leikmaður Chelsea gæti tekið áhugavert skref í sumar
433Sport
Í gær

Sjáðu myndband frá svakalegri uppákomu í Bandaríkjunum í nótt – Stjörnurnar slógust

Sjáðu myndband frá svakalegri uppákomu í Bandaríkjunum í nótt – Stjörnurnar slógust
433Sport
Í gær

Snýr aftur heim

Snýr aftur heim