fbpx
Þriðjudagur 26.maí 2026
433Sport

City fengið á sig ótrúlegt magn af mörkum undanfarið – Einn sigur í síðustu 12

Victor Pálsson
Laugardaginn 21. desember 2024 20:21

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester City er búið að fá á sig 27 mörk í síðustu 12 leikjum sínum sem er virkilega óvenjulegt fyrir Englandsmeistarana.

City tapaði gegn Aston Villa á útivelli í dag og var að tapa sínum sjötta leik í deildinni hingað til.

City hefur að sama skapi aðeins unnið einn af síðustu 12 leikjum sínum sem er í raun galin tölfræði miðað við mannskapinn.

Meistararnir unnu Nottingham Forest nokkuð þægilega 3-0 þann 4. desember og gerðu svo jafntefli við Crystal Palace.

Síðasti sigurleikur liðsins fyrir utan leikinn gegn Forest kom í október og vannst 1-0 gegn Southampton.

City er með fjóra í markatölu eftir 17 leiki en toppliðin þrjú eru með plús 18 og er munurinn mikill.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Luke Shaw í sögubækur Manchester United

Luke Shaw í sögubækur Manchester United
433Sport
Í gær

De Zerbi brattur eftir að hafa bjargað Spurs frá falli – Boðar það að kaupa hetju dagsins

De Zerbi brattur eftir að hafa bjargað Spurs frá falli – Boðar það að kaupa hetju dagsins
433Sport
Fyrir 2 dögum

Guardiola segir frá fallegum skilaboðum sem hann fékk frá Ferguson í gær

Guardiola segir frá fallegum skilaboðum sem hann fékk frá Ferguson í gær
433Sport
Fyrir 2 dögum

City setur allt í botn og vilja Enzo frá Chelsea

City setur allt í botn og vilja Enzo frá Chelsea
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kveðst engan húmor hafa fyrir hinum umdeilda fjölmiðlamanni – „Þó hann sé að segja eitthvað sem ég er sammála fer hann samt í taugarnar á mér“

Kveðst engan húmor hafa fyrir hinum umdeilda fjölmiðlamanni – „Þó hann sé að segja eitthvað sem ég er sammála fer hann samt í taugarnar á mér“
433Sport
Fyrir 3 dögum

Liverpool setur öflugan kantmann efst á óskalistann

Liverpool setur öflugan kantmann efst á óskalistann