

Það bíða margir spenntir eftir stórleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni en leikið er á Anfield klukkan 16:00.
Liverpool fær þar Manchester City í heimsókn en það síðarnefnda hefur tapað síðustu þremur leikjum sínum í deildinni.
Liverpool getur náð níu stiga forskoti á toppnum með sigri í dag en liðið er þessa stundina sex stigum á undan Arsenal.
Hér má sjá hvernig þessi tvö lið stilla upp í viðureigninni.
Liverpool: Kelleher, Trent A-A, Gomez, Van Dijk, Robertson. Gravenberch, Szoboszlai, Mac Allister, Salah, Gakpo, Diaz.
Man City: Ortega Moreno, Walker, Akanji, Dias, Ake, Lewis, Gundogan, Nunes, Bernardo, Foden, Haaland.