fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Hvað gerist í kvöld? – Aðeins einn sigur í átta leikjum gegn Wales

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 19. nóvember 2024 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

A landslið karla mætir Wales í í Cardiff í lokaleik sínum í Þjóðadeildinni í kvöld. Leikurinn hefst kl. 19:45 að íslenskum tíma og er í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Stöð 2 Sport.

Eftir úrslit laugardagsins er Tyrkland efst í riðlinum með 11 stig, Wales í öðru með níu stig, Ísland með sjö stig og Svartfjallaland án stiga og fallið í C deild.

Leikur Íslands og Wales er eiginlegur úrslitaleikur um annað sætið, sem gefur sæti í umspili um sæti í A deild, en rétt er að geta þess að Wales á enn möguleika á að vinna riðilinn og fara beint upp í A deild. Liðið sem endar í þriðja sæti fer í umspil um fall í C deild. Í öllu falli er ljóst að Ísland leikur í öðru hvoru umspilinu í mars.

Ísland hefur einu sinni unnið Wales í 8 viðureignum í A landsliðum karla. Sá sigur kom á Laugardalsvelli í undankeppni HM 1986 og skoraði Magnús Bergs eina mark leiksins. Þetta reyndust einu stig íslenska liðsins í fjögurra liða riðli, þar sem einnig voru lið Skotlands og Spánar.

Liðin mættust í Þjóðadeildinni í ár á Laugardalsvelli í september og lauk þeim leik með 2-2 jafntefli þar sem íslenska liðið lenti tveimur mörkum undir í fyrri hálfleik en náði að jafna metin í þeim seinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn