fbpx
Þriðjudagur 26.maí 2026
433Sport

England: Fyrrum varnarmenn Chelsea tryggðu stig

Victor Pálsson
Laugardaginn 2. nóvember 2024 19:23

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Wolves 2 – 2 Crystal Palace
0-1 Trevoh Chalobah(’60)
1-1 Jorgen Strand Larsen(’67)
2-1 Joao Gomes(’72)
2-2 Marc Guehi(’77)

Seinni hálfleikurinn í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni var frábær skemmtun en spilað var á Molineaux vellinum.

Crystal Palace heimsótti Wolves að þessu sinni en ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik.

Palace komst yfir eftir klukkutíma en varnarmaðurinn Trevoh Chalobah skoraði þá í nánast autt mark.

Wolves sneri leiknum sér í vil og komst í 2-1 forystu og var í raun mun sterkari eftir opnunarmarkið.

Annar varnarmaður Palace, Marc Guehi, jafnaði hins vegar metin fyrir Palace stuttu eftir seinna mark Wolves og tryggði 2-2 jafntefli.

Chalobah og Guehi eru báðir fyrrum Chelsea menn og reyndust hetjur gestaliðsins í kvöld.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

City setur allt í botn og vilja Enzo frá Chelsea

City setur allt í botn og vilja Enzo frá Chelsea
433Sport
Fyrir 2 dögum

Telja upphæðina allt of lága – „Maður eiginlega skammast sín“

Telja upphæðina allt of lága – „Maður eiginlega skammast sín“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Liverpool setur öflugan kantmann efst á óskalistann

Liverpool setur öflugan kantmann efst á óskalistann
433Sport
Fyrir 2 dögum

Tómas með eldræðu í beinni eftir atburði vikunnar – „Þetta er svo ógeðslega heimskulegt“

Tómas með eldræðu í beinni eftir atburði vikunnar – „Þetta er svo ógeðslega heimskulegt“