fbpx
Miðvikudagur 14.maí 2025
433Sport

Arteta sammála sínum manni: ,,Ég var steinhissa“

Victor Pálsson
Sunnudaginn 1. september 2024 18:37

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, tekur undir orð leikmanns liðsins, Bukayo Saka, og heimtar meiri stöðugleika frá dómurum deildarinnar.

Arsenal spilaði við Brighton í gær í leik sem lauk 1-1 en Arsenal var manni færri nánast allan seinni hálfleikinn.

Declan Rice fékk rautt spjald fyrir að sparka í boltann er Joel Veltman var að fara taka aukaspyrnu en það var hans annað gula spjald.

Eins og Saka þá bendir Arteta á að Joao Pedro hjá Brighton hafi gert það sama í fyrri hálfleik en hann slapp með refsingu.

,,Ef það er spjaldað fyrir þetta í hvert skipti í leikjum og það er stöðugleiki í dómgæslunni þá ekkert mál, en það er ekki staðan,“ sagði Arteta.

,,Ég var steinhissa. Í fyrri hálfleiknum þegar andstæðingarnir gerðu þetta þá var ekki spjaldað. Hann tekur þessa ákvörðun á ómerkilegum hluta vallarins.“

,,Samkvæmt reglunum þá má hann spjalda fyrir þetta en það þarf að vera stöðugleiki í þessu. Ef það væri raunin þá væri þeirra maður rekinn útaf og þetta eru 10 gegn 10.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Viðræður um Cunha ganga virkilega vel

Viðræður um Cunha ganga virkilega vel
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Breytingar á leikjum í Bestu deildinni

Breytingar á leikjum í Bestu deildinni
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Gera stólpagrín að leikmanni Manchester United – Var hann í alvöru að þessu?

Gera stólpagrín að leikmanni Manchester United – Var hann í alvöru að þessu?
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Diego Simeone vill fá Antony í sumar

Diego Simeone vill fá Antony í sumar
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Breyting sem gefur Íslandi von um að komast á HM í fyrsta sinn

Breyting sem gefur Íslandi von um að komast á HM í fyrsta sinn
433Sport
Í gær

Segir frá einkennum af hræðilegri flensu sem hann fékk á dögunum – „Ég hélt að á næstu mínútum myndi ég bara deyja“

Segir frá einkennum af hræðilegri flensu sem hann fékk á dögunum – „Ég hélt að á næstu mínútum myndi ég bara deyja“
433Sport
Í gær

Brjálaður á Bernabeu og vill burt – Pirraður á komu Bellingham og Mbappe

Brjálaður á Bernabeu og vill burt – Pirraður á komu Bellingham og Mbappe