fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Segja að fréttirnar um aðstoðarmann Ten Hag séu rangar – Er að jafna sig eftir aðgerð

Victor Pálsson
Laugardaginn 27. júlí 2024 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er bull að aðstoðarmaður Erik ten Hag, stjóra Manchester United, sé búinn að ákveða það að yfirgefa félagið.

Frá þessu greina enskir miðlar en um er að ræða Steve McClaren sem er orðaður við önnur störf og þá sem aðalþjálfari.

Athygli vakti að McClaren ferðaðist ekki með United til Los Angeles í vikunni þar sem liðið er í æfingaferð.

Daily Mail segir að McClaren sé að jafna sig eftir aðgerð og að það sé ástæðan fyrir því að hann sé ekki með í för.

Áður var talað um að McClaren væri í viðræðum við nokkur félög sem og landslið um að taka við sem aðalþjálfari en ekkert hefur fengist staðfest í þeim málum.

Meiri líkur eru á að McClaren verði áfram við hlið Ten Hag í vetur en enska úrvalsdeildin hefst um miðjan næsta mánuð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn