fbpx
Mánudagur 12.maí 2025
433Sport

United mögulega að fá manninn sem þeir hafa reynt við í mörg ár

Victor Pálsson
Sunnudaginn 21. júlí 2024 17:18

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United er loksins að fá miðjumann sem félagið hefur reynt við í mörg ár ef marka má heimildir Romain Collet-Gaudin sem er franskur blaðamaður.

Collet-Gaudin segir að United sé í viðræðum við franska landsliðsmanninn Adrien Rabiot sem spilaði með Frökkum á EM í sumar.

Rabiot er fáanlegur á frjálsri sölu en hann yfirgaf lið Juventus í sumar og er að leita að nýju heimili.

United hefur allt að fjórum sinnum reynt að fá Rabiot og jafnvel þegar leikmaðurinn spilaði með Paris Saint-Germain í Frakklandi.

United er einnig að horfa til Manuel Ugarte sem spilar með Paris Saint-Germain en Rabiot er þó mjög ofarlega á óskalistanum og er eins og áður sagður fáanlegur á frjálsri sölu.

Liverpool hefur einnig sýnt Rabiot áhuga en hann er 29 ára gamall og lék með Juventus í fimm ár.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

England: City missteig sig gegn versta liðinu – Flottur sigur Everton

England: City missteig sig gegn versta liðinu – Flottur sigur Everton
433Sport
Í gær

Besta deildin: Vestri aftur á toppinn eftir góðan sigur

Besta deildin: Vestri aftur á toppinn eftir góðan sigur