Cesc Fabregas mun þjálfa lið Como á næstu leiktíð en liðið mun leika í Serie A í fyrsta sinn í 21 ár.
Fabregas er búinn að öðlast þau réttindi til að stýra Como en hann var áður þjálfari liðsins ásamt Osian Roberts.
Liðið tryggði sér sæti í Serie A á síðustu leiktíð og mun gera mikið til að halda sæti sínu í efstu deild.
Samkvæmt Gazzetta dello Sport á Ítalíu þá er Fabregas í viðræðum við tvo leikmenn sem aðdáendur ensku úrvalsdeildarinnar kannast við.
Það eru þeir Alexis Sanchez sem gerði garðinn frægan hjá Arsenal og Barcelona en hann lék með Fabregas á Spáni.
Hinn maðurinn kemur kannski úr óvæntri átt en það er markvörðurinn Loris Karius sem var síðast hjá Newcastle.
Karius er þekktastur fyrir tíma sinn hjá Liverpool þar sem hann gerði afar slæm mistök í úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2018 gegn Real Madrid.
Báðir leikmenn eru fáanlegir á frjálsri sölu en Sanchez hefur ákveðið að yfirgefa lið Inter á Ítalíu.