fbpx
Sunnudagur 06.júlí 2025
433Sport

Sjáðu myndbandið sem er á allra vörum eftir frábæran sigur Arsenal í gær – Maðurinn sem hefur heillað alla upp úr skónum

Aron Guðmundsson
Mánudaginn 20. mars 2023 11:30

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Oleksandr Zinchencko, vinstri-bak­vörður Arsenal, hefur á skömmum tíma tekist að koma sér í guð­tölu hjá stuðnings­mönnum fé­lagsins. Zinchen­ko hefur leikið lykil­hlut­verk í liði Arsenal á yfir­standandi tíma­bili og í gær, eftir sigur gegn Crys­tal Palace, kom hann stuðnings­mönnum á ó­vart.

Arsenal vann í gær 4-1 sigur á grönnum sínum í Crys­tal Palace í ensku úr­vals­deildinni og eru Skytturnar nú með átta stiga for­skot á toppi deildarinnar en Manchester City á þó leik til góða og gæti minnkað bilið niður í fimm stig.

Zinchen­ko gekk til liðs við Arsenal frá Manchester City fyrir yfir­standandi tíma­bil og hefur hann fundið sig um leið í her­búðum Arsenal. Fram hefur stigið leið­togi sem stuðnings­menn Arsenal kunna að meta og í gær eftir leik, kom Zinchen­ko stuðnings­mönnum Arsenal á ó­vart.

Er Zinchen­ko var að aka heim frá Emira­tes leik­vanginum, skrúfaði hann niður bíl­rúðuna á bíl sínum, lét bíl­flautuna vinna og fagnaði í áttina að stuðnings­mönnum Arsenal sem voru saman­komnir á bar við heima­völl fé­lagsins.

Heyra mátti mikil fagnaðar­læti á mynd­bandinu af at­vikinu sem unnusta Zinchen­ko birti á sam­fé­lags­miðlum en mynd­bandið má sjá hér fyrir neðan:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Myndband: Gæsahúð í Bern þegar 2 þúsund Íslendingar sungu „Ég er kominn heim“

Myndband: Gæsahúð í Bern þegar 2 þúsund Íslendingar sungu „Ég er kominn heim“
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Handboltagoðsögnin leyfir sér að vera bjartsýnn – „Ekki annað hægt en að stíga upp“

Handboltagoðsögnin leyfir sér að vera bjartsýnn – „Ekki annað hægt en að stíga upp“
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Dóri Gylfa: „Við verðum eins og krækiber í helvíti en krækiber eru góð“

Dóri Gylfa: „Við verðum eins og krækiber í helvíti en krækiber eru góð“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Magnaður Messi minnti á gamla tíma og skoraði stórkostlegt mark

Magnaður Messi minnti á gamla tíma og skoraði stórkostlegt mark
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Miður sín yfir því sem gerðist í gær og fór grátandi af velli – Baðst afsökunar á samskiptamiðlum

Miður sín yfir því sem gerðist í gær og fór grátandi af velli – Baðst afsökunar á samskiptamiðlum
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Móðir stórstjörnunnar kom henni til varnar – Mætir Íslandi í kvöld

Móðir stórstjörnunnar kom henni til varnar – Mætir Íslandi í kvöld
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Gríðarlegur munur á tekjum kvenna og karla – Stelpurnar gátu náð í 5,1 milljón evra

Gríðarlegur munur á tekjum kvenna og karla – Stelpurnar gátu náð í 5,1 milljón evra